Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship
- by Visir
- Nov 01, 2025
- 0 Comments
- 0 Likes Flag 0 Of 5
Tölvuteiknuð mynd af Starship-geimfari og geimförum á yfirborði tunglsins.
SpaceX
Forsvarsmenn geimfyrirtækisins SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, auðugasta manns heims, eru staðráðnir í því að lenda geimförum á tunglinu og nota Starship-geimfar til þess. Starfandi yfirmaður NASA bauð á dögunum fyrirtækjum að gera aftur tilboð í að lenda geimförum á tunglinu og þar með taka yfir samning sem SpaceX hlaut árið 2021.
Umsvif SpaceX í geimnum hafa aukist til muna á undanförnum árum en forsvarsmenn fyrirtækisins sögðu um miðjan október að búið væri að koma rúmlega tíu þúsund Starlink-gervihnöttum á braut um jörðu. Það er gervihnattaþyrping sem hægt er að nota til að komast á netið nánast hvar sem er í heiminum.
SpaceX hefur sett fjölmarga gervihnetti á vegum yfirvalda í Bandaríkjunum á braut um jörðu og hefur flutt geimfara og birgðir til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar.
Árið 2021 gerðu forsvarsmenn SpaceX samning við Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) um að lenda geimförum tvisvar sinnum á tunglinu á komandi árum. Til stóð að lenda þeim með Starship-geimfari SpaceX en þróun þess hefur ekki farið eftir vonum.
Samningurinn hljóðar upp á fjóra milljarða dala.
Sean Duffy, samgönguráðherra og starfandi yfirmaður NASA tilkynnti á dögunum að hann ætlaði að halda aftur útboð á verkefninu og bjóða öðrum fyrirtækjum að gera tilboð í það að lenda geimförum á tunglinu í þriðja og fjórða geimskotum Artemis-áætlunarinnar. Í kjölfarið gagnrýndi Musk Duffy harðlega á samfélagsmiðlum og kallaði hann meðal annars heimskan og homma.
Artemis-áætlunin snýst í stuttu máli um að senda geimfara aftur til tunglsins og koma þar upp varanlegri viðveru. Nota á tunglið sem stökkpall lengra út í sólkerfið. Í grískri goðafræði er Artemis systir Apollos.
Til stendur að senda þrjá bandaríska og einn kanadískan geimfara á braut um tunglið í apríl á næsta ári. Um mitt ár 2027 á, samkvæmt áætlunum NASA, að lenda geimförum á tunglinu í fyrsta sinn frá desember 1972, þegar geimfararnir Gene Cernan og Harrison Schmitt urðu ellefti og tólfti maðurinn til að ganga á yfirborði tunglsins.
Óttast að Kínverjar verði á undan
Í yfirlýsingu frá SpaceX, sem birt var á vef fyrirtækisins í gær, segir að starfsmenn fyrirtækisins séu staðráðnir í að halda þróun Starship áfram og að geimfarið sé gífurlega mikilvægt þegar kemur að því að koma upp varanlegri byggð manna annars staðar en á jörðinni og í Artemis-áætluninni.
Á endanum stendur til að nota Starship til að senda menn til Mars.
Please first to comment
Related Post
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy





