Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“
- by Visir
- Feb 02, 2026
- 0 Comments
- 0 Likes Flag 0 Of 5
Elon Musk er einn helsti boðberi hvítrar þjóðernishyggju í krafti samfélagsmiðils síns X.
EPA/FRANCIS CHUNG
Áform spænskra stjórnvalda um að veita þúsundum manna sem dvelja ólöglega í landinu tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi jafngilda „þjóðarmorði“ á hvítu fólki að mati Elons Musk, ríkasta manns heims. Allt að hálf milljón manna gæti fengið dvalarleyfi.
Minnihlutastjórn Sósíalistaflokksins kynnti áform um að veita fólki sem kom ólöglega til Spánar fyrir síðustu áramót og getur sýnt fram á að það hafi dvalið í landinu í að minnsta kosti fimm mánuði dvalar- og atvinnuleyfi til allt að eins árs í síðasta mánuði.
Áætlað er að rúmlega hálf milljón manna, sem margir hverjir vinna í láglaunastörfum eins og í landbúnaði, ferðaþjónustu, umönnun og ræstingum, gæti fengið tímabundið leyfi með þessari aðgerð, að sögn AP-fréttastofunnar.
Áformin vekja ekki síst athygli vegna þess að Bandaríkin og flest önnur Evrópuríki stefna í þveröfuga átt í innflytjendamálum í skugga uppgangs fjarhægriflokka. Þau eru þó ekki fordæmalaus því spænsk stjórnvöld hafa sex sinnum áður veitt slíka sakaruppgjöf fyrir fólk sem dvelur ólöglega í landinu á undanförnum áratugum.
Sagðist vilja mikil útskipti á fasistum og rasistum
Aðgerðir spænsku ríkisstjórnarinnar fóðra nú samsæriskenningar fjarhægrimanna um meint hrun vestrænnar siðmenningar og „útskipti“ á hvítu og kristnu fólki í vestrænum ríkjum. Kenningin hefur verið kennd við „útskiptin miklu“ og hafa sumir íslenskir stjórnmálamenn talað fyrir henni hér á landi.
Musk er einn áhrifamesti boðberi hvítrar þjóðernishyggju af þessu tagi. Hann líkir áformum Spánverja við „þjóðarmorð“.
„Hún talar fyrir þjóðarmorði. Algerlega fyrirlitlegt,“ skrifaði Musk á eigin samfélagsmiðli og vísaði til orða spænskrar Evrópuþingkonu sem styður áformin um tímabundnu dvalarleyfin.
Skjáskot af ummælum Elons Musk á X um spænska þingkonu.
Skjáskot
Færsla Musk var svar við hollenskum fjarhægriáhrifavaldi sem deildi orðum Irene Montero, spænsk Evrópuþingmanns, á viðburði í Zaragoza. Þar sagðist Montero aðhyllast eigin kenning um útskiptin miklu
„Að sjálfsögðu vil ég að það verði útskipti á fasistum og rasistum,“ hefur spænska dagblaðið El País eftir Montero á viðburðinum. Hún er í forystu vinstriflokksins Við getum.
Montero vísaði til Epstein-skjalanna svonefndu þegar hún svaraði Musk fullum hálsi í eigin færslu á X. Á meðal þeirra var tölvupóstur frá Musk þar sem hann sóttist eftir að komast í „villt partí“ á alræmdri einkaeyju bandaríska kynferðisbrotamannsins.
X-færsla Irene Montero um Elon Musk og útskiptin miklu.
Skjáskot
„Auðvitað verður heiðvirt fólk, sem meirihluti mannkynsins er, að skipta þér út. Strax. Svo að þú hættir að nauðga, sprengja, ræna börnum og drepa,“ skrifaði þingkonan.
Please first to comment
Related Post
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy




