Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn
- by Visir
- Feb 04, 2026
- 0 Comments
- 0 Likes Flag 0 Of 5
Sjá einnig: Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks
Sú sviðsmynd veltur þó á því að Musk komi markaðsvirði Tesla í 8,5 billjónir dala. Það er nú metið 1,3 billjónir dala og hefur lækkað um 0,2 billjónir frá því launapakkinn var samþykktur.
Metinn á 500 milljarða í október
Þetta er í annað sinn á innan við ári sem Musk sameinar fyrirtæki í hans eigin eigu. Í mars í fyrra sameinaði hann xAI við X (áður Twitter) en þá mat hann sjálfur xAI á áttatíu milljarða dala og X á 33 milljarða en hann borgaði 44 milljarða fyrir Twitter á sínum tíma.
Í báðum tilfellum hefur staða Musks sem bæði seljandi og kaupandi vakið spurningar um það hvernig hann verðmetur fyrirtækin sín. Hann er þó sagður stefna að því að setja SpaceX á markað seinna á þessu ári.
Aldrei jafn mikill munur á þeim ríkustu
Annar auðugasti maður heims er Larry Page, einn af stofnendum Google, en hann er metinn á 281 milljarð dala. Það samsvarar um 34,5 billjónum króna. Munurinn á milli þeirra er 578 milljarðar dala en samkvæmt Forbes hefur munurinn á auðæfum ríkasta manns heims og þess næstríkasta aldrei verið svo mikill.
Á einungis fjórum mánuðum hafa auðæfi Musks tekið stakkaskiptum. Í október varð hann fyrstur til að eignast fimm hundruð milljarða dala. Í desember rauf hann fyrstur sex hundruð milljarða dala múrinn en einungis fjórum dögum síðar fór auður hans yfir sjö hundruð milljarða, þegar hæstiréttur Delaware felldi úr gildi fyrri úrskurð um að kaupréttur hans á Tesla væri ólögmætur.
Eins og áður segir, er hann nú metinn á 852 milljarða dala eða 105 billjónir króna.
Í október 2021 spáðu greinendur Morgan Stanley að SpaceX myndi gera Musk að fyrsta billjónamæringi heims, í dölum talið.
Please first to comment
Related Post
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy




