Sænskur ráðherra hlutgerður á miðli Musk
- by Visir
- Jan 06, 2026
- 0 Comments
- 0 Likes Flag 0 Of 5
6. janúar 2026 12:19
Noteandi biður Grok, gervigreindarspjallmenni X, um bikínímynd af Ebbu Busch. Spjallmennið brást við beiðninni sem og öðrum um að breyta hlutföllum líkama hennar.
Skjáskot af X
Evrópsk yfirvöld eru byrjuð að skoða fjöldaframleiðslu spjallmennis Elons Musk á kynferðislegum myndum af táningsstúlkum og konum. Varaforsætisráðherra Svíþjóðar er á meðal kvenna sem miðillinn leyfir notendum sínum að hlutgera á samfélagsmiðlinum X með hjálp spjallmennisins.
Spjallmennið Grok, sem er innbyggt í X, byrjaði nýlega að verða við óskum notenda um að framleiða kynferðislegar myndir af táningsstúlkum og konum gegn vilja þeirra. Flest gervigreindarfyrirtæki hafa hömlur á spjallmennum sínum til að koma í veg fyrir á slíku efni.
Frönsk yfirvöld hafa þegar hafið rannsókn á hundruðum tilvika um gervigreindarmyndir á X af ungum stúlkum og konum. Fjölmiðlanefnd Bretlands hefur einnig sent X „brýnt erindi“ um að Grok framleiði kynferðislegar myndir af börnum, að sögn breska ríkisútvarpsins.
X hefur ekki brugðist við fyrirspurnum fjölmiðla um framferði spjallmennisins. Í færslu á samfélagsmiðlinum vísaði fyrirtækisins til myndanna sem einangraðra atvika og að unnið væri að því að koma í veg fyrir þau. Musk sjálfur varaði notendur X við að þeir væru ábyrgir fyrir myndunum.
Talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sagði hana meðvitaða um að X og Grok byðu nú upp á „ögrandi útgáfu“ þar sem kynferðislegt efni væri sýnt, þar á meðal af börnum.
„Það er ekki ögrandi, það er ólöglegt,“ sagði Thomas Regnier, talsmaðurinn við Bloomberg.
„Bikíní núna“
Notendur X hafa undanfarið keppst við að biðja Grok um að eiga við myndir af konum og spjallmennið hefur orðið við þeim bónum. Í sumum tilfellum hefur gervigreindin útbúið myndir af konum á undanfötunum einum saman og stækkað brjóst þeirra að ósk notenda.
Á meðal þeirra sem hafa hlotið slíka meðferð er Ebba Busch, varaforsætisráðherra Svíþjóðar.
Eliot Higgins, stofnandi rannsóknarblaðamennskusamtakanna Bellingcat, tók saman þráð af X þar sem notendur tóku mynd af Busch í ræðustól á sænska þinginu og báðu Grok um að breyta útliti hennar á kynferðislegan hátt.
One example of how Grok is being used to target women. Swedish Deputy Prime Minister Ebba Busch being sexualised, degraded, and humiliated step-by-step by Grok. All the images accurately reflect the prompts provided.
Please first to comment
Related Post
Elon Musk’s last co-founder reportedly leaves xAI
- Mar 28, 2026
Stay Connected
Tweets by elonmuskTo get the latest tweets please make sure you are logged in on X on this browser.
Energy




